HSS
HSS

Fréttir

Miðvikudagur 13. desember 2000 kl. 10:21

Vinsælt jólalag

Ungur Keflavíkingur og meðlimur í hljómsveitinni Tópaz hefur gefið út jólalag sem notið hefur mikilla vinsælda á útvarpsstöðvunum undanfarnar vikur.
„Ég samdi lagið á haustmánuðum og við fengum síðan til liðs við okkur unga og efnilega söngkonu, Ragnheiði Gröndal sem söng m.a í uppsetningu Verslunarskólans á söngleiknum Thriller s.l vetur“, segir Ellert Rúnarsson lagahöfundur. „Við fórum í stúdíó í lok október sem er frekar seint fyrir jólalag en það tókst að klára lagið og 1.desember var það sent á allar útvarpsstöðvarnar. Lagið var umsvifalaust sett í spilun og er komið á svokallaðann „playlista“ en það þýðir að lagið er í reglulegri spilun mest á Útvarpi Sögu 94.3“, segir Ellert og er ánægður með árangurinn en það heyrir til undantekninga að óþekkt hljómsveit fari inn á þennan lista. „Þetta er því mikill sigur fyrir bandið en sveitin áformar að gefa út plötu í vor“, segir Ellert að lokum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn