Bygg
Bygg

Fréttir

Vinsælast 2012: Dýrasta pizza Íslandssögunnar?
Fimmtudagur 27. desember 2012 kl. 15:06

Vinsælast 2012: Dýrasta pizza Íslandssögunnar?

Nú verður farið yfir vinsælustu fréttir ársins 2012 á vefsíðu okkar vf.is. Við teljum niður tíu vinsælustu fréttir ársins en þar er af mörgu að taka en níunda vinsælasta frétt ársins segir af heimsendingarþjónustu af dýrari gerðinni.

Ingólfur Karlsson eigandi veitingastaðarins Langbest var staddur upp í Kerlingafjöllum ásamt Jeppavinafélaginu á þorrablóti snemma árs 2012. Eitthvað var Ingólfur svangur á föstudeginum og vissi af félögum sínum sem voru staddir á Langbest og voru á leið upp í Kerlingarfjöll.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hann gerði sér lítið fyrir og pantaði eitt stykki stóra Langbest pítsu með öllu. „Sendingin tók 10 klukkutíma og pítsan var orðin köld þegar hún kom á staðinn. Ég borgaði því ekki neitt fyrir hana,“ segir Ingólfur en uppátækið vakti mikla kátínu enda um létt grín að ræða.

Sjá fréttina í heild sinni hér.