Fréttir

Vinnuvélar skemmdar og stolið úr þeim
Mánudagur 15. september 2014 kl. 12:00

Vinnuvélar skemmdar og stolið úr þeim

Skemmdir voru nýverið unnar á fjórum vinnuvélum í eigu Íslenskra aðalverktaka, þar sem þær stóðu við Fuglavík, á vinnusvæði við Helguvík. Rúður voru brotnar og útvörpum stolið úr tveimur þeirra. Þá var rúða brotin í einni til viðbótar og úr hinni fjórðu var útvarpi stolið. Talið er að skemmdarverkin hafi átt sér stað aðfararnótt föstudagsins síðastliðins.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og eru þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um það að hafa samband í síma 420-1800.

Þá var brotist inn í geymsluhúsnæði við Hvalvík á svipuðum tíma og þaðan stolið fjórum mótorhjólahjálmum. Ekkert annað var tekið þrátt fyrir að talsverð verðmæti væru í geymslunni. Lögregla rannsakar málið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024