HSS
HSS

Fréttir

Fimmtudagur 26. júlí 2001 kl. 10:04

Vinnuslys í Njarðvík

Síðustu dagar hafa verið frekar rólegir hjá Lögreglunni í Keflavík. Einn maður var tekin, grunaður um ölvunarskastur á aðfaranótt miðvikudags. Þá var tilkynnt um minnháttar umferðaróhapp og vinnuslys.
Erlendur ferðamaður velti bifreið sinni í Krísuvík á mánudag. Maðurinn slapp án teljandi meiðsla.
Um kl. 11 á þriðjudag barst lögreglu síðan tilkynning um vinnuslys í Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Maður á fertugsaldri féll úr 3 metra hæð niður á teina. Óttast var að maðurinn væri fótbrotinn og var hann fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.
Bílakjarninn
Bílakjarninn