Kalka atvinna okt 25
Kalka atvinna okt 25

Fréttir

Vinnuskólinn í Reykjanesbæ: Allir fá vinnu
Miðvikudagur 6. apríl 2011 kl. 09:34

Vinnuskólinn í Reykjanesbæ: Allir fá vinnu

Öllum unglingum í 8., 9. og 10. Bekkjum í grunnskólum Reykjanesbæjar bjóðast störf í Vinnuskóla bæjarins í sumar. Þetta kom fram á íbúafundi með Árna Sigfússyni bæjarstjóra í Innri Njarðvík í fyrrakvöld. Bæjarstjóri fundar með íbúum í Ytri Njarðvík í kvöld í Njarðvíkurskóla kl. 20.


Vinnuskólinn hefst 6. Júní n.k. og mikilvægt er að börn skrái sig tímanlega, svo unnt sé að skipuleggja verkstjórn og búnað fyrir hópinn, að sögn bæjarstjóra. Gert er ráð fyrir að 8. bekkingar vinni í 3 vikur miðað við fulla aðsókn unglinga en 9. og 10. bekkingar í 4 vikur. Hann sagði að mikilvægt væri að vanda til undirbúnings því í flestum tilfellum væri er um að ræða fyrstu kynni unglinga af launaðri atvinnu og því mikilvægt að vel takist til, því lengi býr að fyrstu gerð.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk



Helstu verkefni eru: Almenn hreinsun og sláttur á opnum svæðum, tyrfing og beðahreinsun og sláttur í görðum íbúa sem óska eftir aðstoð.


Dubliner
Dubliner