Vinnueftirlit Varnarliðsins vinnur til æðstu verðlauna
Flotastöð Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli vann nýlega til verðlauna bandaríska Flotamálaráðuneytisins fyrir frábæran árangur í vinnuvernd annað árið í röð. Daniel Reinhard aðstoðarráðherra Bandaríkjaflota afhenti yfirmanni flotastöðvarinnar, Mark Anthony og Magnúsi Guðmundssyni forstöðumanni vinnueftirlits Varnarliðsins, verðlaunin við athöfn á Keflavíkurflugvelli í lok ágúst.
Flotastöðin á Keflavíkuflugvelli er stærsta deild Varnarliðsins og annast alla þjónustustustarfsemi þess á varnarsvæðinu, þ. á m. rekstur flugvallarins, húsnæðis, veitu- og birgðastofnana svo eitthvað sé nefnt. Auk 1.900 hermanna starfa um 850 Íslendingar hjá Varnarliðinu beint, flestir hjá flotastöðinni, og er vinnueftirlitið rekið á vegum hennar. Auk þess starfa a.m.k. 600 manns á vegum íslenskra verktakafyrirtækja á varnarsvæðinu.
Íslensk vinnuverndalög gilda á Keflavíkurflugvelli. Sú vinnuregla er þó viðhöfð að ávallt er farið eftir þeim lögum og reglugerðum, íslenskum eða bandarískum, sem ná lengra hverju sinni. Forstöðumaður og eftirlitsmenn vinnueftirlitsins eru íslenskir og annast þeir reglubundið eftirlit með öryggi og vinnuvernd í öllum mannvirkjum og á vinnustöðum á varnarsvæðinu
auk öryggis við íþrótta- og tómstundaiðkun svo og á sviði umferðaröryggis.
Fræðsla er stór þáttur starfseminnar og fá allir starfsmenn Varnarliðsins, íslenskir og bandarískir, reglubundna þjálfun á þessu sviði. Vinnuslys eru fátíð á Keflavíkurflugvelli og er það ekki hvað síst, að þakka árangursríkri starfsþjálfun og eftirliti. Náið samstarf er við Vinnueftirlit ríkisins og önnur íslensk yfirvöld um öryggi á vinnustöðum og vinnuvernd á Keflavíkurflugvelli og hafa Magnús og starfsfólk hans áður hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín.