Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 21. maí 2001 kl. 13:36

Vinnslustöðin kaupir Jón Erlingsson ehf.

Vinnslustöðin hf. hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutabréfum í Jóni Erlingssyni ehf. í Sandgerði. Helstu eignir Jóns Erlingssonar ehf. eru fiskvinnsluhús í Sandgerði, vélbáturinn Æskan GK-222 auk aflaheimilda sem nema 1.750 þorskígildistonnum.Samningurinn er með fyrirvara um samþykki stjórnar Vinnslustöðvarinnar og hefur félagið frest til 31. maí til að fullnusta kaupsamninginn.
Í frétt frá Vinnslustöðinni kemur fram að samningurinn kveður meðal annars á um heimild Vinnslustöðvarinnar til að framselja hluta hins keypta til þriðja aðila. Gangi kaup Vinnslustöðvarinnar á hlutabréfum í Jóni Erlingssyni ehf. eftir er gert ráð fyrir að fiskvinnsluhús fyrirtækisins í Sandgerði verði selt en Vinnslustöðin hf. haldi eftir aflaheimildum, bátnum og veiðarfærum.

Visir.is greindi frá.
Bílakjarninn
Bílakjarninn