Vinabæjarsamstarf við Fjaler til umræðu í Vogum
Samstarf frístunda- og menninganefndar Sveitarfélagsins Voga við Norrænafélagið um vinabæjarsamstarf var til umræðu á síðasta fundi nefndarinnar.
Norræna félagið kynnti á fundinum fyrir frístunda og menninganefnd hvernig það sér fyrir sér samvinnu um samskipti við vinabæ Voga, Fjaler í Noregi. Frístunda- og menninganefnd leggur til að Norræna félagið bíði eftir svari frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og í framhaldi verði skoðað hvernig sveitarfélagið komi að verkefninu.