Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Viltu opna banka í flugstöðinni?
Fimmtudagur 4. júní 2015 kl. 09:55

Viltu opna banka í flugstöðinni?

Isavia hefur auglýst eftir tilboðum í fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í fjármálaþjónustunni felst meðal annars gjaldeyrisþjónusta, rekstur hraðbanka og endurgreiðsla á virðisaukaskatti. Tilboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), segir í tilkynningu á vef Isavia.

Fyrirtæki sem skila inn tilboði þurfa að hafa starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki útgefið af íslenska Fjármálaeftirlitinu eða starfsleyfi gefið út af öðrum þjóðum innan EES.

Ný tækifæri með breyttri skiptingu farþega
Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað mikið síðustu árin, í takt við fjölgun erlendra ferðamanna til Íslands. Árið 2010 voru farþegar rúmar tvær milljónir en árið 2014 fóru um 3,9 milljónir um flugvöllinn. Samkvæmt áætlunum Isavia mun þessi fjölgun halda áfram næstu árin og gert er ráð fyrir að talan verði komin upp í 5,2 milljónir árið 2020. Á þessum tíma hafa skapast ný tækifæri í fjármálaþjónustu á flugvellinum þar sem mikil breyting hefur orðið á hlutfallinu á milli íslenskra og erlendra farþega. Fyrir þessa miklu aukningu fór jafnt hlutfall innlendra og erlendra ferðamanna um flugvöllinn en nú eru 70% ferðamanna erlendir og 30% innlendir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024