Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vill stytta leigutíma Magma við Reykjanesbæ
Þriðjudagur 20. júlí 2010 kl. 13:04

Vill stytta leigutíma Magma við Reykjanesbæ

Iðnaðarráðherra vill stytta leigutíma samnings Magma við Reykjanesbæ á jarðhitaréttindum. Formlegar viðræður hefjast um málið innan skamms. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur samkvæmt samningnum við Reykjanesbæ nýtingarrétt á jarðhita suður með sjó í 65 ár og getur framlengt hann um önnur 65 ár, ef vilji er fyrir hendi. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill styttan þennan tíma, en telur óæskilegt að rifta samningnum.

Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur samkvæmt samningnum við Reykjanesbæ nýtingarrétt á jarðhita suður með sjó í 65 ára og getur framlengt hann um önnur 65 ár ef vilji er fyrir hendi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill stytta þennan tíma, en telur óæskilegt að rifta samningnum. Hún segir að nú sé málið þannig statt að verið sé að hefja þríhliða viðræður um að stytta leigutímann.

Hún segist vera að vinna að frumvarpi sem stytti heimildir sveitarfélaganna til að leigja frá sér auðlindir. Hún segir að í þessu sambandi þurfi annarsvegar að taka tillit til jarðvarmans og hins vegar til vatnsaflsins. Hún telur að leigutími vatnsafls geti verið lengri, jafnvel 40 - 45 ár, en leigutími jarðvarma um 30 - 35 ár.

Þá vill Katrín tryggja forkaupsrétt ríkisins að bréfum í HS Orku. Ef verið sé að ofnýta auðlindir, þá geti ráðherra afturkallað virkjanaleyfið.

www.ruv.is