Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vill láta skoða fangelsi á Ásbrú
Föstudagur 17. janúar 2014 kl. 08:57

Vill láta skoða fangelsi á Ásbrú

Miðað við stöðuna í fangelsismálum eru vonbrigði að ekki hafi verið skoðaðir möguleikar á að innrétta fangelsi í lausum byggingum á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu í Reykjanesbæ. Þetta sagði Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á þingi í gær. Greint er frá málinu í Fréttablaðinu í dag.

Á þingi í gær varpaði hann fram spurningu til innanríkisráðherra hvort, í ljósi þess að 500 manns séu á biðlista eftir afplánun í fangelsum og fyrirhugað fangelsi á Hólmsheiði muni aðeins rúma um 50 fanga, ekki hafi verið teknir út möguleikar á Ásbrú.

Ráðherra sagði svo ekki vera og svaraði Karl því til að hann væri undrandi á því að svo hefði ekki verið gert.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024