Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vill fresta flutningi á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Fimmtudagur 9. september 2010 kl. 09:17

Vill fresta flutningi á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga


Bæjarstjórn Grindavíkur vill að flutningi á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga verði frestað um eitt ár. Undirbúningsvinnu verði haldið áfram af krafti og verði lokið tímanlega fyrir áramótin 2011 – 2012.
Bæjarstjórnin telur óvissu ríkja um stöðu og framkvæmd á málefnum fatlaðra og vill því fresta flutningi verkefnisins, að því er er fram kemur í bókun bæjarstjórnar frá fundi hennar í gær.

Í bókuninni kemur fram að unnið hafi verið að undirbúningi að flutningi málefna fatlaðra undanfarin þrjú ár, en málið eigi sér lengri forsögu og hafi verið í umræðunni allt frá árinu 1992 án þess að endanleg niðurstaða hafi fengist. Í mars 2009 hafi verið undirrituð viljayfirlýsing milli ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu þjónustu við fatlaða. Í henni hafi verið lagt upp með ákveðna verk- og tímaáætlun sem feli í sér að sveitarfélögin taki við ábyrgð á verkefninu árið 2011.

„Ljóst er að sú tímaáætlun hefur ekki staðist og mörg veigamikil verkefni eru enn óleyst, bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Sem dæmi má nefna að ekki hafa öll lagafrumvörp verið afgreidd, svo sem um réttindagæslu fatlaðs fólks og eftirlit með þjónustu. Ný búsetureglugerð er ekki tilbúin og ekki hafa öll sveitarfélög staðfest ný þjónustusvæði.
Skýrsla ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlaða sem gefin var út í ágúst síðastliðnum gefur auk þess vísbendingar um að ekki sé farið að lögum í framkvæmd á málefnum fatlaðra í dag. Þær vísbendingar kalla á að umræða fari fram um málaflokkinn á Alþingi og innan ríkisstjórnarinnar, ekki síst m.t.t. hvort fjárframlög til málaflokksins séu nægileg. Ríkisendurskoðun bendir jafnframt á að ekki hafa verið skilgreindir mælikvarðar til að nota við endurmat árið 2014 eins og lagt er upp.
Við verkefnaflutninginn eykst ábyrgð sveitarstjórnarmanna mikið, bæði gagnvart notendum þjónustunnar og starfsmönnum. Bæjarstjórn Grindavíkur telur ekki ábyrgt að taka við verkefninu í þeirri óvissu sem nú ríkir. Það er hvorki notendum þjónustunnar né starfsmönnum til hagsbóta,“ segir ennfremur í bókun bæjarstjórnar.

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Grindavíkurbæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024