Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Vill byggja leikskóla sem nýtist báðum bæjarkjörnum
Frá leikskólanum Gefnarborg.
Fimmtudagur 13. desember 2018 kl. 09:39

Vill byggja leikskóla sem nýtist báðum bæjarkjörnum

Fulltrúi B- lista í bæjarstjórn Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis, sem eftir áramót fær nafnið Suðurnesjabær, lagði fram bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar vegna framkvæmda við stækkun Gefnarborgar í Garði. Á tólfta fundi bæjarráðs var samþykkt að fara í framkvæmdir við stækkun Gefnarborgar. Samkvæmt kostnaðaráætlun kostar stækkun leikskólans rétt rúmar 118 milljónir króna.

„Sú ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar um stækkun á leikskólanum í Garðinum upp á 120 milljónir er ekki framkvæmd sem leysir vandamál margra foreldra um von á auknu leikskólarými. Þessi framkvæmd upp á 120 milljónir leysir ekki vandamál foreldra sem þurfa að fara á vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof. Flest framboð töluðu um ungbarnaleikskóla fyrir seinustu kosningar, þessi framkvæmd eykur ekki rými fyrir börn yngri en 18 mánaða. Hugsum um framtíðina og byggjum leikskóla sem nýtist báðum bæjarkjörnum,“ segir Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi í bókun sinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Vegna bókunar Daða sá meirihlutinn sig knúinn til að bóka einnig um málið:

„Meirihluti vill benda á að vinna við að setja á stofn ungbarnaleikskóla er þegar hafin, sbr. ákvörðun bæjarráðs á þriðja fundi ráðsins 25. júlí 2018“.