Vilji íbúa verði kannaður með kosningu
Samtökin Sól á Suðurnesjum krefjast þess fallið verði frá áformum um álver í Helguvík og virkjanir á Reykjanesskaga þar til vilji íbúa hefur verið kannaður með kosningu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samþykkt var á opnum fundi samtakanna í gærkvöldi í Svarta pakkhúsinu. Fjölmenni var á fundinum.
Í yfirlýsingunni segir að Hafnfirðingar einir fái að kjósa um hugsanlega stækkun álvers í Straumsvík jafnvel þótt virkjanir vegna stækkunarinnar verði í öðrum landshluta. Öll mannvirki vegna stóriðjuáforma í Helguvík verða hins vegar á Reykjanesskaganum og því sé réttur Suðurnesjamanna augljós.
Á meðal þeirra sem fluttu erindi á fundinum voru Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar og Ómar Ragnarsson. Ómar sýndi viðtöddum sláandi myndir af umhverfisspjöllum sem unnin hafa verið í Trölladyngju í tengslum við jarðboranir þar.
Sól á Suðurnesjum benda á að engin umræða hafi farið fram um málið á meðal íbúa svæðisins þrátt fyrir skiptar skoðanir. Engu að síður sé unnið að framvindu málsins að fullum krafti. Fundurinn í gærkvöld var haldin í þeim tilgangi að opna almenna umræðu um málið.
Myndir: Frá fjölmennum fundi Sólar á Suðurnesjum í gærkvöld. Ómar Ragnarsson hreif salinn með sér og sýndi viðstöddum m.a. sláandi myndir af náttúruspjöllum í tengslum við jarðboranir í Trölladyngju. VF-myndir: Ellert Grétarsson.