Bygg
Bygg

Fréttir

Viljayfirlýsing undirrituð um kaup á læknisþjónustu
Mánudagur 28. apríl 2003 kl. 16:59

Viljayfirlýsing undirrituð um kaup á læknisþjónustu

Sigríður Snæbjörnsdóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Guðmundur Einarsson forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um viðræður um kaup á læknisþjónustu á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Í yfirlýsingunni segir að viðræður milli stofnananna muni hefjast á næstu dögum þar sem nánari útfærsla samstarfsins verður ákveðin og að viðræður muni fela í sér skilgreiningu á læknisþjónustu sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun kaupa af Heilsugæslunni í Reykjavík. Sigríður Snæbjörnsdóttir sagði við þetta tilefni að hún væri ánægð með að málefni Heilsugæslunnar væru komin á þetta stig og að hún væri bjartsýn á gott samstarf. Sigríður kom sérstöku þakklæti á framfæri til starfsfólks HSS sem hún sagði að hefði unnið undir miklu álagi síðustu mánuði.
Bílakjarninn
Bílakjarninn