Viljayfirlýsing um Hringrásargarð á Suðurnesjum undirrituð
Á fundi Suðurnesjavettvangs um sjálfbæra framtíð Suðurnesja, skrifuðu sveitarstjórar og fyrirtæki á svæðinu undir viljayfirlýsinu um hringrásargarð á Suðurnesjum. Fundurinn fór fram í Hljómahöll 16. júní og voru kynntar niðurstöður tveggja ára vinnu um hvernig efla á atvinnulíf og styrkja innviði Suðurnesjanna í átt að sjálfbærri framtíð.
Suðurnesjavettvangur er samstarf sveitarfélaganna fjögurra á Suðurnesjum, Isavia, Kadeco og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Í viljayfirlýsingunni lýstu aðilar að Suðurnesjavettvanginum og fyrirtæki á svæðinu yfir vilja til þess að vera þátttakendur í þeirri vinnu sem snýr að mótun og þróun hringrásargarðs.
Fram kemur í yfirlýsingunni að Suðurnesin séu frumkvöðlar á Íslandi í mótun hringrásarhugsunar í atvinnulífi og Auðlindagarðurinn í Svartsengi, undir forystu HS Orku, dæmi og fyrirmynd um slíkt. Hugmyndafræðin á bak við garðinn sé í grunninn sú að aðilar leitast við að deila, selja og/eða kaupa aukaafurðir vegna starfsemi sinnar, með það að markmiði að auka árangur í efnahags, umhverfis- og félagslegum málum, sem falli vel inn í stefnu þeirra.
Ásamt fjölmörgum erindum á fundinum voru pallborðsumræður þar sem þátttakendur voru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra,Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Anna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Þjónustu- og rekstrarsviðs Isavia, og Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadego. Rætt var um möguleika Suðurnesja í því að styrkja atvinnulífið og gera það fjölbreyttara. Snúa vörn í sókn.
Aðilar að viljayfirlýsingunni eru:
- KADECO
- Isavia
- HS orka
- Carbon recycling
- Hornsteinn
- Pure North Recycling
- Terra
- Íslenska Gámafélagið
- Iðunnh2
- Kalka
- Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum f.h. sveitarfélaganna á Suðurnesjum