Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

  • Vilja þyrlupall í Sandgerði
  • Vilja þyrlupall í Sandgerði
    Stefán Sigurðsson.
Föstudagur 3. júlí 2015 kl. 07:00

Vilja þyrlupall í Sandgerði

Ferðaþjónustan í Sandgerði laðar að efnamikla ferðamenn.

Eigendur veitingahússins Vitans í Sandgerði hafa áhuga á að koma upp aðstöðu til þess að þyrlur með matargesti sem vilja koma fljúgandi geti lent við veitingastaðinn. Óskað hefur verið eftir leyfi til að þyrlur fái að lenda á svæðinu á milli Þekkingarseturs Suðurnesja og starfssvæðis vélsmiðjunnar Hamars. 

„Það kom fyrirspurn frá ferðaþjónustufyrirtæki um hvort hægt væri að lenda þyrlu hérna. Það var vilji fyrir því í vetur að koma hingað með tvær þyrlur en veðrið spilað eitthvað inn í. Ef við sækjum ekki um leyfi fyrir þessu eins og nú og höfum leyfi frá bæjarstjórninni, þá þurfum við að sækja um slíkt í hvert einasta skipti. Það bara gengur ekki því það tekur svo langan tíma,“ segir Stefán Sigurðsson, eigandi veitingahússins Vitans í Sandgerði, og bætir við að margt efnað fólk komi til hans að borða. „Á föstudaginn komu 80 manns sem komið höfðu með einkaflugvél. Þau ætluðu að vera á landinu í þrjá daga og byrjuðu á því að koma til okkar. Síðan héldu þeir áfram í Bláa Lónið og eitthvað. Þetta er fólkið sem við viljum fá. Það hafa þegar um 5000 manns bókað hjá okkur næsta vetur.“ Spurður um hversu vongóður hann sé um að leyfi fáist segir Stefán vera það. „Þeir leyfa okkur þetta, það er bara spurning um hvort við fáum að hafa pallinn á staðnum sem okkur langar að hafa hann.“  

Public deli
Public deli

Óli Þór Ólafsson, starfandi bæjarstjóri í Sandgerði, segir vinsælt að byggja upp starfsemi á Suðurnesjum tengdri ferðaþjónustu. Samvinna og þekking samfélaganna á svæðinu skipti þar miklu máli. „Eigendur Vitans hafa verið að fá fyrirspurnir um hvort hægt sé að taka á móti þyrluferðamönnum og sendu því erindi til okkar í bæjarstjórn. Við erum að velta þessu fyrir okkur með velviljuðum huga. Við viljum þó fyrst og fremst vanda okkur.“ Erindi hafi verið sent til Samgöngustofu fyrir tveimur vikum til álits og mögulegrar leiðbeinslu. „Við bíðum eftir svari. Ferðaþjónustan í Sandgerði hefur verið að byggjast upp, tjaldstæðið er mikið notað og gisting í Nátthaga hefur verið uppbókuð. Við höfum fundið fyrir aukinni fjölgun ferðamanna hér,“ segir Óli Þór.