Vilja skotsvæði í Grindavík
Skotfélag Grindavíkur hefur óskað eftir aðstöðu fyrir félagsmenn til skotæfinga í landi Grindavíkur. Þann 17. maí var skotfélagið Markmið stofnað í Grindavík með það í huga að koma upp aðstöðu fyrir félagsmenn til skotæfinga, þar sem löglegt svæði væri viðurkennt af lögreglu og bæjaryfirvöldum í Grindavík.
Óskað er eftir svæði innan bæjarmarkanna til uppbyggingar fyrir skotæfingar með bréfi til skipulags- og bygginganefndar Grindavíkur sl. mánudag.
Nefndin samþykkir að vinna áfram að því að finna svæði fyrir skotfélagið Markmið og taka málið aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar.