Vilja skipta um nafn á Sorpeyðingarstöð Suðurnesja
	Lagt er til að nafni Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. verði breytt. Þetta er meðal tillagna sem framkvæmdastjóri félagsins lagði fyrir stjórnarfund í júní og að tillagan verði tekin fyrir á aðalfundi Sorpeyðinarstöðvarinnar í ágúst næstkomandi.
	Lagt er til að nafnið Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. verði aflagt og í þess stað verði tekið upp nýtt nafn á félagið; Kalka sf. sorpeyðingarstöð (Kalka, incinerator authority). Með breyttu nafni verður ekki breyting á kennitölu félagsins.
	Í greinargerð með tillögunni segir að í daglegu tali er félagið lang oftast kallað Kalka, bæði af starfsfólki, viðskiptaaðilum og almenningi. Nafn félagsins er langt og óþjált, sér í lagi þegar um er að ræða samskipti við erlenda aðila. Einnig hefur þetta nokkuð oft valdið misskilningi hjá aðilum sem senda félaginu reikninga o.þ.h.
	Stjórn félagsins telur nafnabreytingu tímabæra.
				
	
				

 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				