Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Vilja reisa möstur fyrir fjarskiptasambönd í Grindavík
Þriðjudagur 30. mars 2021 kl. 11:15

Vilja reisa möstur fyrir fjarskiptasambönd í Grindavík

Míla hefur lagt fram beiðnir til bæjaryfirvalda í Grindavík til að bæta fjarskiptasamband í Grindavík og til að tryggja rekstraröryggi ef rafmagn fer af bænum. Fulltrúar Mílu funduðu með bæjarráði Grindavíkur 16. mars sl. vegna málsins.

Míla ehf óskar m.a. eftir að reisa mastur á lóð félagsins við Víkurbraut 25. Um er að ræða 18 metra háan járnstaur til að hýsa farsímaloftnet og þar með bæta farnetssamband í Grindavíkurbæ. Einnig óskar fyrirtækið eftir að setja farsímaloftnet í 15-18 metra hæð við norður hluta bæjarins á hentugum stað.

Þá óskar Míla ehf eftir að Grindavíkurbær setji í deiliskipulag aðstöðu fyrir farsímafélög við í austurhluta bæjarins.
Bæjarráð Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024