Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vilja muni Unu í Sjólyst
Sjólyst í Garði þar sem Una Guðmundsdóttir, Völva Suðurnesja, bjó alla sína ævi.
Miðvikudagur 23. september 2015 kl. 10:13

Vilja muni Unu í Sjólyst

Hollvinir Unu í Sjólyst hafa sent bæjaryfirvöldum í Garði erindi varðandi varðveislu muna er tengjast Unu Guðmundsdóttur, Völvu Suðurnesja, sem bjó í Sjólyst í Garði.

Í erindinu er óskað eftir því að munir sem voru í eigu Unu verði staðsettir í Sjólyst til frambúðar og skráðir sem safnmunir þar, en munirnir eru í dag skráðir sem safnmunir Byggðasafns sveitarfélagsins og varðveittir í safninu á Garðskaga.

Samþykkt var samhljóða á síðasta bæjarráðsfundi í Garði að vísa erindinu til Ferða-, safna-og menningarnefndar sveitarfélagsins.


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024