Vilja ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar
- Nefndarálit Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis
Brýnt er að forgangsraða verkefnum þannig að umferðaröryggi sé í forgrunni og horfa til þeirra vega þar sem bæta þarf umferðaröryggi. Á umferðarmestu vegunum er ástandið orðið slæmt og hættulegir vegakaflar, meðal annars á Grindavíkurvegi, að því er kemur fram í nefndaráliti frá Umhverfis- og samgöngunefnd alþingis um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun næstu fjögurra ára. Í nefndarálitinu kemur fram að Grindavíkurvegur sé afar fjölfarinn vegna Bláa lónsins og aukinna umsvifa í sjávarútvegi í Grindavík.
Í nefndarálitinu kemur jafnframt fram að með mikilli fyrirhugaðri uppbyggingu á Miðnesheiði og í tengslum við Keflavíkurflugvöll þurfi að huga að uppbyggingu nauðsynlegra innviða í nágrenni vallarins, klára tvöföldun Reykjanesbrautar alla leið að flugstöðinni auk annarra vega í kringum svæðið svo umferðarflæði verði greitt og jafnframt gætt að öryggismálum.
Í nokkrum höfnum eru uppi áætlanir um framkvæmdir sem ríkið á að taka þátt í kostnaði við á grundvelli hafnalaga. Í nefndarálitinu kemur fram að í nokkru samræmi við þær breytingar sem meirihluti nefndarinnar lagði til á síðasta þingi hafi framkvæmdum í Grindavíkurhöfn verið flýtt en fjárveitingar nægja þó ekki til að klára framkvæmdir í höfninni á tímabilinu. Nefndin leggur til nokkra aukningu til endurnýjunar stálþils en umsvif í höfninni hafa aukist nokkuð síðustu missiri. Lagt er til að til hafnarinnar í Grindavík verði veitt 136 milljónum króna árið 2017 og 30 milljónum króna árið 2018.