HSS
HSS

Fréttir

Vilja láta tvöfalda Reykjanesbraut og fjölga útskotum
Þriðjudagur 12. júlí 2016 kl. 06:00

Vilja láta tvöfalda Reykjanesbraut og fjölga útskotum

- Nær allir ferðamenn á landinu fara um Reykjanesbraut

Stjórn Reykjanes Global Geopark telur að tvöfalda þurfi Reykjanesbraut að Rósaselstorgi, fjölga útskotum á flestum vegum á Suðurnesjum og fjölga snjómokstursdögum og bæta hálkuvarnir. Þetta kemur fram í svari stjórnarinnar við fyrirspurn Stjórnstöðvar ferðamála um það hverjar eru þarfir ferðaþjónustunnar á Reykjanesi í samgöngumálum.

Í svari stjórnar Reykjanes Global Geopark segir að samkvæmt aðalskipulagi Reykjanesbæjar tímabilið 2008 til 2024 sé gert ráð fyrir að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar að Rósaselstorgi. Samhliða því sé gert ráð fyrir mislægum gatnamótum við Þjóðbraut. Í svarinu segir að mikil slysahætta myndist þegar ökutæki þveri Reykjanesbrautina. „Alltof mörg dæmi eru um slys, annars vegar við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar og hins vegar við gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar. Það er því afar brýnt að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en um hana fara nærri allir ferðamenn sem koma til landsins auk starfsfólks á flugstöðvarsvæðinu,“ segir í svari stjórnarinnar sem sent var 13. júní síðastliðinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Stjórnin telur að fjölga þurfi útskotum á flestum vegum á Suðurnesjum, til dæmis á Suðurstrandarvegi, Nesvegi, Hafnavegi, Garðskagavegi, Norðurljósavegi og Vatnsleysustrandarvegi. Umferðarálag hafi aukist verulega á öllum vegum á Suðurnesjum undanfarin ár allt árið um kring. Málið sé brýnt enda skapist mikil slysahætta þegar ferðamenn eða áhugafólk stöðvi ökutæki sín á þröngum vegum þar sem engin aðstaða er til staðar.

Bætt vetrarþjónusta er eitt af því sem stjórn Reykjanes Geopark telur mikilvægt að ráðast í þar sem að með aukinni umferð á öllum vegum á Suðurnesjum sé þörf á að fjölga snjómokstursdögum þegar það á við og bæta hálkuvarnir. Stjórnin telur þetta sérstaklega eiga við um Suðurstrandarveg, Nesveg, Hafnaveg og Reykjanesvitaveg en þessir vegir tengja vinsæla ferðamannastaði yst á Reykjanesi; Valahnúk, Gunnuhver, Brimketil og Brú milli heimsálfa.

Stjórn Reykjanes Geopark telur mikilvægt að bæta hálkuvarnir á vegum sem tengjast vinsælum ferðamannastöðum eins og Gunnuhver.