Vilja kanna vindorku á Reykjanesi
– vilja koma upp mælitækjum til að mæla kosti vindmyllugarðs á svæðinu.
EAB newenergy í Þýskalandi hefur óskað eftir því að gera viljayfirlýsingu við Grindavíkurbæ um vindorkugarð á Reykjanesi. Fulltrúar EAB komu á fund skipulagsnefndar Grindavíkur í byrjun mánaðarins og kynntu drög að viljayfirlýsingu og áætlanir um vindorkugarð á Reykjanesi.
Áætlanirnar eru á frumstigi og snúast eins og er að því hvort koma eigi upp mælitækjum til að mæla kosti vindmyllugarðs á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkti að vinna málið áfram en vísar viljayfirlýsingu til frekari vinnslu í bæjarráði. Nefndin leggur áherslu á að íbúafundur verði haldinn áður en ákvörðun verður tekin. Bæjarráð Grindavíkur tók málið fyrir í síðustu viku og fól bæjarstjóra að vinna málið áfram.