Vilja jarðstreng í stað háspennulínu
Náttúrverndarsamtök Íslands krefjast þess að Hitaveita Suðurnesja leggi jarðstreng frá Reykjanesvirkjun í stað háspennulínu eins og hitaveitan áformar. Samtökin hafa sent skipulagsstofnun umsögn varðandi áform hitaveitunnar þar sem háspennulínunni er mótmælt. Í tilkynningu frá samtökunum segir að háspennulína yfir hraunið á utanverðu Reykjanesi muni valda óásættanlegri sjónmengun á fjölsóttum ferðamannastöðum.
Þá er eitt stærsta kríuvarp landsins sé rétt sunnan við línuna og með þeim fjölbreyttustu fuglabjarga á Suðurnesjum norðan við hana. Kom þetta fram í Bylgjufréttum í morgun.




