Fréttir

  • Vilja framleiða súrefni í Vogum
  • Vilja framleiða súrefni í Vogum
Föstudagur 2. október 2015 kl. 09:34

Vilja framleiða súrefni í Vogum

ÍSAGA hefur áhuga á að byggja upp nýja súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju í Vogum á Vatnsleysuströnd og hefur óskað eftir lóð fyrir starfsemina.

Í erindinu er lýst áformum fyrirtækisins um uppbyggingu nýrrar súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut, ásamt því að starfsemi fyrirhugaðrar verksmiðju er lýst nánar í erindinu.

Í erindinu er þess farið á leit við Sveitarfélagið Voga að það gefi á þessu stigi umsögn um fyrirhugaða framkvæmd og þær breytingar sem fyrirséð er að gera þurfi á deiliskipulagi vegna hæðar kæliturns og tanka, áður en lengra er haldið í undirbúningi.

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga fagnar áhuga Ísaga ehf. og tekur jákvætt í erindið sem vísað hefur verið til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd sveitarfélagsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024