Bygg
Bygg

Fréttir

Vilja endurvinna spilliefni í Reykjanesbæ
Föstudagur 2. nóvember 2012 kl. 10:01

Vilja endurvinna spilliefni í Reykjanesbæ

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir starfsemi Efnaeimingar ehf. í Reykjanesbæ.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að endurvinna með eimingu allt að 80 tonn á ári af tilteknum spilliefnum í vökvafasa.

Spilliefnin sem um ræðir eru terpentína, sellulósaþynnir, etanól og önnur sambærileg spilliefni. Einnig verður Efnaeimingu heimilt að flytja spilliefni að og frá starfstöð sinni. Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára, að því er segir á vef Umhverfisstofnunar og vitnað er til á mbl.is.

Bílakjarninn
Bílakjarninn