Vilja endurskoða þjónustusamning við Reykjanesbæ
Bæjarstjórn Garðs hefur samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að eiga viðræður við Reykjanesbæ og Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar um endurskoðun á þjónustusamningum Sveitarfélagsins Garðs við Reykjanesbæ vegna þjónustu Fræðsluskrifstofu við Gerðaskóla.
Jafnframt var samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra, í samráði við skólastjóra Gerðaskóla og formann skólanefndar, að gera tillögur til bæjarráðs um fyrirkomulag þeirrar þjónustu sem Gerðaskóli þarf að hafa aðgang að fyrir starfsemi skólans.