Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 4. janúar 2002 kl. 22:25

Vilja endurskoða „Reykjanesbæ á réttu róli“

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt að endurskoða markmið og hlutverk verkefnisins „Reykjanesbær á réttu róli“. Verkefnið hafi í upphafi áunnið sér mikla virðingu og traust meðal bæjarbúa en verkefnið hafi tekið miklum breytingum frá því fyrst var stofnað til þess.Formanni tómstunda- og íþróttaráðs Reykjanesbæjar barst nýverið bréf frá formanni Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Jóhanni Magnússyni þar segir m.a.:
„Íþróttabandalag Reykjanesbæjar hefur undanfarin ár staðið að verkefninu "Reykjanesbær á réttu róli". Verkefnið ávann sér, strax í upphafi, mikla virðingu og traust meðal bæjarbúa, sem alhliða forvarnarverkefni. Eðli og starfsemi verkefnisins hefur tekið breytingum á þeim tíma sem verkefnið hefur verið í gangi. ÍRB telur nauðsynlegt að á næstunni, verði leitað til sem flestra aðila sem komið hafa að verkefninu í gegn um tíðina, með einum eða öðrum hætti við endurskoðun á markmiðum og hlutverki Reykjanesbæjar á réttu róli“.
Á fundi tómstunda- og íþróttaráðs nýverið var rætt um framtíð verkefnisins en Ólafur Grétar Gunnarsson, verkefnisstjóri hætti störfum hjá Reykjanesbæ um áramótin.
Bílakjarninn
Bílakjarninn