Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vilja ekki raforkuna til Helguvíkur
Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 08:43

Vilja ekki raforkuna til Helguvíkur


Það ætlar ekki að ganga þrautalaust fyrir sig að útvega orku og flytja hana til álvers í Helguvík því nú hefur sveitarfélagið Ölfus lagst alfarið gegn því að háspennulína verði lögð frá Hellisheiðarvirkjun til Suðurnesja.  Sveitarfélagið vill frekar að orkan verði notuð til uppbyggingar í Þorlákshöfn. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld.

Skammt er síðan samningar um Suðurnesjalínu virtust í höfn eftir að samkomulag náðist við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði um línulagnir í landi sveitarfélagsins. Þar með var talið að allar hindranir væru að baki varðandi lagningu háspennulínunnar.

Sveitarfélagið Ölfus hefur um árabil boðið iðnaðarlóðir við Þorlákshöfn undir stóriðju og átt í viðræðum við hin ýmsu fyrirtæki, en án þess að nokkuð hafi verið byggt upp.

Ölfusingar sjá nú álver rísa í Helguvík en rafmagnið þangað á að hluta að koma frá virkjunum í þeirra eigin sveitarfélagi á Hellisheiði. Þeir orkuflutningar kalla á lagningu nýrrar háspennulínu frá Henglinum til Helguvíkur, en sú lína mun liggja innan sveitarfélagamarka Ölfuss á kafla milli Kolviðarhóls og Sandskeiðs.

Raflína verður hins vegar ekki lögð án leyfis viðkomandi sveitarfélags og bæjarstjórn Ölfuss hefur nú samþykkt að leggjast gegn línunni. Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri segir að ástæðan sé fyrst og fremst atvinnumál. Hann telur að línan til Helguvíkur verði banabiti áforma um orkufrekan iðnað á Suðurlandi enda opnist með henni möguleikar til að flytja alla raforku Þjórsárvirkjana til Suðurnesja, segir í frétt Stöðvar 2.

Stöð 2 hefur eftir Ólafi Áka að kostnaður Landsnets við Suðurnesjalínu verði það mikill að ekki verði svigrúm til að leggja jafnframt línu frá Hellisheiði til Þorlákshafnar. Þetta muni leiða til þess að öll atvinnuppbygging verði á Suðurnesjum, álver, netþjónabú og sólarkísilverksmiðja, á sama tíma og Suðurland verði afskipt þar sem 900 manns séu nú atvinnulausir. Sveitarfélagið Ölfuss leggist því gegn því að orka frá virkjunum á Hellisheiði fari til Suðurnesja.

Aðspurður hvort þetta geti ekki kallast fjárkúgun, segir Ólafur Áki svo ekki vera, - þetta sé þeirra aðgerð til að orkan nýtist til atvinnuppbyggingar í heimabyggð.

Sjá einnig www.visir.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

----

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Helguvík.