Vilja ekki innanlandsflugið til Keflavíkur
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla ákvörðun borgaryfirvalda í Reykjavík um flutning innanlandsflugvallar úr Vatnsmýri.
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla ákvörðun borgaryfirvalda í Reykjavík um flutning innanlandsflugvallar úr Vatnsmýri en Keflavík hefur iðulega komið upp í umræðunni um nýja staðsetningu fyrir innanlandsflug.
Í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunna kemur fram að niðurstöður úr skoðanakönnun sem gerð var meðal félagsmanna Samtaka ferðaþjónustunnar sem gerð var sl. haust sýnir að 71% þeirra félagsmanna sem tóku afstöðu, vilja hafa höfuðstöðvar innanlandsflugs í Reykjavík frekar en í Keflavík.