Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vilja breytingu á lögum eða sérlög fyrir Reykjanesbæ
Föstudagur 11. desember 2009 kl. 13:49

Vilja breytingu á lögum eða sérlög fyrir Reykjanesbæ


Atvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjar skorar á fjármálaráðherra og samgönguráðherra að beita sér fyrir því að breyta hafnalögum eða setja sérlög um aðkomu ríkisins að hafnargerð í Helguvík.
Þetta kom fram á síðasta fundi nefndarinnar þar sem  fjárhagsáætlun ársins 2010 fyrir Reykjaneshöfn var lögð fram.  Atvinnu- og hafnaráð samþykkti fjárhagsáætlunina með þeim fyrirvara að nýjar hafnarframkvæmdir í Helguvík verða ekki boðnar út fyrr en fjármögnun framkvæmda verði tryggð.

Í október síðastliðnum kölluðu bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ eftir svörum frá ríkisvaldinu hvort það ætlaði að koma að þeim viðamiklu hafnarframkvæmdum sem standa fyrir dyrum í Helguvík og taldar eru nauðsynlegar vegna álversins. Haft var eftir samgönguráðherra í fjölmiðlum að ekkert fjármagn væri eyrnamerkt framkvæmdinni enda kæmi ríkið ekki að hafnarframkvæmdum sem þessum. Vísaði ráðherra í hafnarlög frá 2003 í því sambandi.

Framkvæmdin í heild mun kosta  2,8 milljarða króna og hefur komið fram að Reykjanesbær telur sig hafa fengið loforð frá fyrri yfirvöldum í þá veru að ríkið greiddi allt að helmingi framkvæmdakostnaðar. Núverandi yfirvöld telja sig hins vegar ekki bundin af þeim loforðum, eins og skilja má af ummælum samgönguráðherra.

Heildarskuldir Reykjaneshafnar nema nú 4,8 milljörðum króna. Ekki hefur tekist að ljúka við langtímafjármögnun eins og fjárhagsáætlun 2009 gerði ráð fyrir. Reykjanesbær hefur  aðstoðað höfnina með skammtímaláni til að létta undir afborgunum lána og verktakagreiðslum. Áætlaður heildarkostnaður við hafnarframkvæmdir í Helguvík er 2,8 milljarðar króna, uppreiknað við verðlag dagsins í dag.

---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Helguvíkurhöfn.