Vilhjálmur Vilhjálmsson ráðinn borgarlögmaður
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hefur verið ráðinn borgarlögmaður. Borgarráð Reykjavíkur tók ákvörðun um að ráða Vilhjálm á fundi sínum í dag. Vilhjálmur lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1976 og stundaði framhaldsnám í lögfræði í Noregi. Hann hefur verið sjálfstætt starfandi lögmaður í hart nær aldarfjórðung og meðal annars rekið lögmannsstofu við Hafnargötuna í Keflavík.