Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Vildi snakk og skemmdi bíl
Föstudagur 11. maí 2012 kl. 14:52

Vildi snakk og skemmdi bíl

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Deilur tveggja rúmlega tvítugra manna um snakk urðu til þess að skemmdir á bifreið voru tilkynntar til lögreglunnar á Suðurnesjum. Mennirnir voru að bera á sólpall þegar annar vildi fá snakk hjá hinum sem neitaði. Þeir byrjuðu að ýta hvor í annan, þar til snakkeigandinn lagði á flótta og skvetti um leið orkudrykk á hinn.

Sá síðarnefndi fór þá að bíl í eigu móður snakkeigandans og sparkaði í hann, auk þess sem hann er sagður hafa barið í skottlok bifreiðarinnar og lamið hana með plastlista.


Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25