Fréttir

Vildi frekar sofa en borða
Mánudagur 21. ágúst 2017 kl. 14:53

Vildi frekar sofa en borða

Flugfarþegi sem stöðvaður var með fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 18. ágúst sl. vildi frekar sofa en að fá að borða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna ummæla Kristrúnar Elsu Harðardóttur hdl. í fjölmiðlum þess efnis að farþegi sem stöðvaður var með fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 18. ágúst sl. hafi verið í haldi lögreglu frá því snemma morguns við „ómannúðlegar aðstæður og ekkert fengið að borða á þeim tíma“. Vegna þessa vill embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri:

„Í bókun um málið kemur skýrt fram að þegar umræddur aðili var kominn í umsjá lögreglu í flugstöðinni var hann spurður hvort hann vildi fá eitthvað að borða. Hann kvaðst frekar vilja sofna meðan beðið var eftir skilríkjasérfræðingi. Lögreglumaður sá þá til þess að vel færi um hann og óskaði aðilinn „ekki eftir frekari aðstoð,“ eins og segir í bókuninni. Hann var svo vistaður á lögreglustöð frá kl. 15:30 – 19:03 þann 18. ágúst. Aðilanum var því boðin öll sú aðstoð sem fyrir hendi var meðan hann var í umsjá lögreglu,“ segir í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024