Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 22. desember 1999 kl. 19:46

VÍKURFRÉTTIR MEÐ TVÖ ALDAMÓTABLÖÐ

30. des. 1999 og 6. jan. 2000 Víkurfréttir gera árþúsundaskiptum góð skil í tveimur næstu tölublöðum. Undirbúningi fyrir gamlárskvöld gerum við góð skil í næsta blaði. Við forvitnumst um hvar fjölmargir Suðurnesjamenn ætla að eyða áramótunum og um áramótaheit. Við reynum eftir fremsta megni að gera öllum uppákomum um áramót skil í blaðinu. Við höfum síðustu daga verið að smala saman upplýsingum um aldamótauppákomur og óskum eftir því að fá að vita um allt sem er að gerast. Þannig viljum við hvetja forstöðumenn allra skemmtistaða, samkomuhúsa og félagsheimila til að senda okkur línu á faxi (421 2777) og láta okkur vita hvað verður um að vera. Blaðamaður og ljósmyndari blaðsins hafa einnig þrætt veitingahús á Suðurnesjum og látið blanda „2000“ kokteilinn. Barþjónar hafa brugðist vel við og við birtum uppskriftir og myndir af kokteilum í næsta blaði. Þar á meðal er óáfengur kokteill fyrir þá sem sjá um bílinn á gamlárskvöld og fyrir krakkana sem þurfa einnig að skála fyrir nýja árinu. Við ætlum að taka púlsinn á flugeldamörkuðum um öll Suðurnes og jafnvel kíkja í búðir og finna þar allt það nauðsynlegasta fyrir áramótin. Við fáum að vita hvort Suðurnesjamenn komi til með að eignast „2000“ barnið og svo mætti lengi telja. Aldamótakveðjur Þeir sem hafa áhuga á að senda vinum og ættingjum aldamótakveðjur er bentr á að Víkurfréttir munu birta slíkar kveðjur í tveimur næstu blöðum og kostar birtingin 1500 kr. Tekið er á móti kveðjum á afgreiðslu blaðsins eða í síma 421 4717 og þá er kostnaður færður á greiðslukort viðkomandi. Kveðjurnar verða með staðlaðri yfirskrift og síðan koma nöfn og heimilisföng sendanda undir. Byrjað verður að taka á móti kveðjum 27. desember 1999. Gleðilega hátíð!
Bílakjarninn
Bílakjarninn