Viku frá Færeyjum til Sandgerðis
Flutningaskipið Nordic Ice, sem flytur fóður frá verksmiðju Skinnfisks í Sandgerði, var viku á leiðinni frá Færeyjum til Sandgerðis. Þessi sigling tekur vanalega um tvo sólarhringa.Skipið hreppti slæmt veður á leiðinni og þegar það koma að Sandgerði komst það ekki inn innsiglinguna fyrir brimi. VArð skipið að leita vars undir Stapanum en gerð var tilraun til að fara inn á Sandgerði í morgun.