HSS
HSS

Fréttir

Föstudagur 3. maí 2002 kl. 21:51

Víkingaþorp við Seltjörn?

Rúmlega tvítugur piltur, Hallgrímur Björnsson, sækir um lóð við Seltjörn til byggingar víkingaþorps og hefur jafnframt lagt fram greinargerð um málið. Málið var tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarnefndar Reykjanesbæjar nýlega.Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið en engar lóðir eru til úthlutunar þar sem deiliskipulag vantar á þessu svæði. Ekki kemur fram hvort til stendur að deiliskipuleggja svæðið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn