Víkingaheimar opna: Vopn víkinga frá árinu 800 meðal sýningargripa
Víkingaheimar í Reykjanesbæ voru formlega opnaðir í gær, 17. júní en til þeirra teljast sýningarskáli Íslendings sem Guðmundur Jónsson arkitekt hannaði og sýningin Víkingar Norður-Atlantshafsins sem sett er upp í samvinnu við Smithsonian-stofnunina í Bandaríkjunum.
Meðal sýningargripa eru vopn víkinga sem grafin voru upp í Svíþjóð og eru talin vera frá því í kringum árið 800. Vopnin eru fengin að láni frá Þjóðminjasafni Svíþjóðar. Einnig eru í sýningunni aðrir ómetanlegir munir, svo sem grafsteinar frá svipuðum tíma og koma munirnir víða að m.a. frá Skandinavíu, Englandi, Færeyjum og Grænlandi.
Opnun Víkingaheima er mikill áfangi í menningartengdri ferðaþjónustu í landi og mikil viðbót við fjölbreytta ferðaþjónustu á Reykjanesinu.
Víkingaheimar verða opnir alla daga frá 11:00 til 18:00 og allar upplýsingar er hægt að fá á heimasíðunni
Ljósmynd: Víkurfréttir / Hilmar Bragi