Vika umferðarlagabrota á enda
Lögreglan í Keflavík kærði fjölmarga fyrir umferðarlagabrot í nýliðinni viku og um verslunarmannahelgina. Talsvert var um hraðakstur en einnig voru menn réttindalausir á léttu óskráðu bifhjóli og með farþega í kaupbæti. Meðfylgjandi er dagbók lögreglunnar í Keflavík fyrir síðustu viku og síðustu helgi.Mánudagur 28. júlí 2003
Nóttin var róleg og ekkert fréttnæmt gerðist
Milli kl. 21 og 22 voru tveir ökumenn kærðir fyrir að nota þokuljós.
Þriðjudagurinn 29. júlí 2003
Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, annar á Reykjanesbraut er ók á 130 km hraða þar leyfður hraði er 90 km hinn á Hafnargötunni í Keflavík er ók á 73 km harða þar sem leyfður hraði er 50 km.
Um kl. 15:00 komu lögreglumenn að þar sem námubifreið hafði farið á hliðina á vinnusvæði við nýju Reykjanesbrautina. Engin meiðsli urðu á ökumanni. Bifreiðin var með jarðefni á palli ekki liggur fyrir hver ástæðan fyrir því að bifreiðin fór á hliðina.
Ökumaður sviptur ökuréttindum var stöðvaður.
Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur. Annar ökumaðurinn var mældist á 148 km hraða á Reykjanesbraut. Hann má eiga von á 40.000 kr. sekt.
Miðvikudagurinn 30. júlí 2003
Á tímabilinu frá 08:00 til 16:00 hafði lögregla afskipti af fjórum ökumönnum vegna hraðaksturs. Tveir voru stöðvaðir á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. Annar mældist á 113 km en hinn á 115 km. Einn var stöðvaður á Garðvegi þar sem hámarkshraði er 90 km en hann mældist á 113 km. Á Njarðarbraut var ökumaður stöðvaður þar sem hann mældist á 76 km hraða þar sem hámarkshraðir er 50 km.
Um kl. 23:00 var ökumaður var kærður fyrir að aka á 87 km/klst á Hringbraut í Keflavík, en þar er hámarkshraði er 50 km/klst. Einn ökumaður var kærður fyrir að hafa ekki öryggisbeltið spennt.
Fimmtudagurinn 31. júlí 2003
Á næturvaktinni var einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut, þar sem hann ók á 114km hraða. Að örðu leyti var rólegt.
Skömmu eftir hádegi var tilkynnt til lögreglu um þjófnað úr íþróttaverslun í Keflavík. Þar hafði, síðastliðna nótt, verið brotist inn og stolið íþróttaskóm og íþróttafatnaði.
Klukkan 14:00 var lögregla kölluð til að Sandgerðishöfn en þar kom björgunarbáturinn Hannes Hafstein með sjómann sem hafði skorist illa á þumalfingri. Hafði atburðurinn átt sér stað við Skerjadýpi.
Síðdegis stöðvaði lögregla ökumann á Reykjanesbraut á 111 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km.
Þrír menn voru handteknir um kl. 21:00 á Hafnargötunni í Keflavík og voru þeir allir handteknir og færðir til stöðvar. Við leit á þeim fannst á einum þeirra fíkniefni; 2 grömm af hassi, og smávægilegt af amfetamíni. Hann viðurkenndi að hafa keypt þetta í dag fyrir eigin neyslu. Að loknum yfirheyrslum var mönnum sleppt, en eru allir á tvítugs aldri.
Einn ökumaður var tekin fyrir grun um ölvun við akstur í nótt.
Kl. 03:51 var tilkynnt um bruna í Sandgerði við Strandgötu 8. Þar er fyrir utan gamalt fiskverkunarhús kviknaði í netadræsum og ýmsu dóti. Eldurinn náði ekki í húsið. Ekki er vitað um eldsupptök. Slökkvilið Sandgerðis kom á staðinn og réði niðurlögum eldsins.
Einn ökumaður var kærður fyrir að hafa ekki öryggisbeltið spennt.
Föstudagurinn 1. ágúst 2003
Tvö minniháttar umferðaróhöpp urðu í Keflavík. Annað óhappið varð er kerra losnaði aftan úr bifreið og hafnaði á bifreið sem kom á móti. Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur.
Kl. 23:59 var ökumaður fólksbifreiðar kærður fyrir að aka á 113 km hraða á Reykjanesbraut.
Laugardagur 2. ágúst 2003
Tíðindalítið bar á góma yfir daginn annað en að ökumaður létts bifhjóls var tekinn réttindalaus, með farþega og hjólið óskráð.
Kl. 00:31 stöðvaði lögreglan akstur ljósvana fólksbifreiðar á Grindavíkurvegi en við athugun kom í ljós að ökumaður hennar var einungis 15 vetra og því full ungur til að stjórna slíku farartæki.
Kl. 21:05 varð árekstur með tveimur fólksbifreiðum á Hópsnesvegi í Grindavík. Óhappið varð á blindhæð og skullu framendar bifreiðanna saman. Óveruleg meiðsl urðu á fólki í annarri bifreiðinni en bifreiðarnar voru mikið skemmdar.
Kl. 21:47 var ökumaður fólksbifreiðar grunaður um ölvunarakstur. Sá var stöðvaður af lögreglu á Hafnargötu í Keflavík.
Kl. 23:41 var ökumaður fólksbifreiðar kærður fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Mældist bifreiðin á 117 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði var 90 km.
Sunnudagur 3. ágúst 2003
Kl. 03:42 var ökumaður fólksbifreiðar kærður fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Mældist bifreiðin á 116 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði var 90 km.
Eigendur/umráðamenn tveggja bifreiða voru boðaðar með bifreiðarnar til skoðunar vegna vanrækslu á að færa þær til skoðunar. Ef þeir sinna þessu ekki innan sjö daga verða skráninganúmerin tekin af bifreiðunum.
Mánudagur 4. ágúst 2003
Rólegt var á næturvaktinni.
Kl. 06:00 var tilkynnt um útafakstur á Reykjanesbraut rétt austan við Grindavíkurveg. Ökumaður og farþegi sluppu án teljandi meiðsla. Ökumaður er grunaður um ölvun við akstur. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið og því fjarlægð af vettvangi með kranabifreið.
Kl. 08:39 var tilkynnt um að bifreið hafi verið ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut á móts við Gærnás. Engin slys urðu á fólki. Ökumaður kvaðst hafa sofnað undir stýri.
Eigendur/umráðamenn 4 bifreiða voru boðaðar með bifreiðarnar til skoðunar vegna vanrækslu á að færa þær til skoðunar.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut. Annar ökumaðurinn ók a 121 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km/klst, en hinn á 100 km/klst þar sem hámarkhraði er 70 km/klst.
Að öðru leyti var rólegt á dagvaktinni.
Kl. 19:40 var enn og aftur tilkynnt um lausar rollur við Reykjanesbraut nálægt Vogavegi.
Kl. 22:56 var tilkynnt um árekstur á Hafnargötu í Keflavík rétt við Aðalgötu. Lögreglumenn fóru á staðinn og aðstoðuðu ökumenn við útfyllingu á tjónaformi tryggingafélaganna.
Á kvöldvaktinni voru tveir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Mældur hraði var 113 km og 117 km þar sem hámarkshraði er 90 km.