Vígsla tvöfaldrar Reykjanesbrautar á sunudag
- Brautin tvöföld frá Hafnarfirði að Njarðvík.
Sunnudaginn 19. október mun samgönguráðherra Kristján L. Möller opna síðasta kaflann í tvöföldun Reykjanesbrautar við Stapahverfi í Reykjanesbæ og vígja þar með tvöfalda Reykjanesbraut frá Hafnarfirði til Njarðvíkur. Að vígslu lokinni verður umferð hleypt á þenna síðasta kafla.
Athöfnin fer fram á veginum við mislæg gatnamót við Stapahverfi kl. 14:00. Að henni lokinni býður Vegagerðin og Áhugahópur um örugga Reykjanesbraut í samsæti í Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Fyrri hluti tvöföldunar, frá Hvassahrauni á Strandarheiði, hófst í janúar 2003 og lauk í október 2004. Seinni hluti, frá Hvassahrauni að Njarðvík, var boðinn út í september 2005. Eftir að Jarðvélar ehf. sögðu sig frá verkinu var það boðið út að nýju sl. vor. Fyrst var miðað við að umferð yrði hleypt á tvöfalda Reykjanesbraut 16. október en þar sem óvenju langan tíma tók að semja við verktaka (lægstbjóðandi var ekki metinn hæfur) var miðað við að umferð yrði hleypt á tvöfalda braut alla leið 1. nóvember.
Samið var við Ístak hf. um byggingu nýju akbrautarinnar en við Eykt ehf. um smíði brúa. Verkið hefur gengið vel sem sést á því að umferð verður hleypt á báðar akreinar hálfum mánuði á undan áætlun.
Myndir: Svona er umhorfs á Fitjum en myndirnar eru teknar með átta ára millibili. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson