Viðvörun vegna veðurs á Reykjanesbraut
– Mjög hvass hliðarvindur á Reykjanesbraut milli kl. 14-17 í dag
Skil óveðurslægðarinnar í suðvestri fara yfir landið í dag og með þeim hvessir og með hríðarveðri um nánast allt land. Suðvestanlands er vaxandi vindur og versnandi skyggni einkum á fjallvegunum. Sérstök athygli er vakin á því á vef Vegagerðarinnar að á Reykjanesbrautinni er reiknað með mjög hvössum hliðarvindi, á milli kl. 14 og 17 að telja. Veðurhæð þá 22-25 m/s og allt að 35 m/s í hviðum.
Á vef Veðurstofu Íslands segir um veður við Faxaflóa: Gengur í austan 18-25 m/s með snjókomu, en slyddu eða ringingu seinnipartinn, hvassast syðst. Mun hægari og skúrir eða él í kvöld. Gengur í norðvestan 15-23 með éljum á morgun, hvassast á Snæfellsnesi. Hiti kringum frostmark.
Snjóþekja og skafrenningur er á Reykjanesbraut.