Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 7. maí 2002 kl. 14:02

Viðurkenndur skoðunarmaður öryggismála á flugvöllum í Evrópu

Stefán Thordersen, forstöðumaður öryggissviðs Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli, hefur fengið viðurkenningu Evrópusambands flugmálastjórna, ECAC, sem skoðunarmaður til að taka út öryggi á flugvöllum í Evrópu. Stefán tók við viðurkenningu þess efnis fyrir helgi.Arngrímur Guðmundsson, yfireftirlitsmaður með flugvernd hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli fékk við sama tækifæri afhent skírteini vegna námskeiðs sem hann sótti í flugvernd og flugöryggi í skóla IATA í Fllórída.

Fram kom við í hófi sem haldið var þeim Stefáni og Arngrími til heiðurs að viðurkennig sú sem Stefán hlaut sé mikils metin í Evrópu. Þannig er Stefán annar Norðurlandabúinn sem hlýtur viðurkenninguna og í dag er það fámennur hópur manna sem hefur réttindi til að taka úr öryggi á flugvöllum Evrópu. Sá hópur mun hins vegar fara stækkandi á undanförnum árum og atburðirnir 11. september í fyrra flýta mjög þar fyrir þeirri þróun.
Mikið átak hefur verið gert í öryggismálum á Keflavíkurflugvelli á síðustu misserum og ekki ofsögum sagt að ástand öryggismála þar er eins og best gerist í heiminum. Stefán hefur yfirumsjón með þeim málum og mun jafnframt skoða ástand á öðrum flugvöllum í Evrópu, en til að halda réttindum verður Stefán að stunda árlegar skoðanir á öðrum flugvöllum innan Evrópusambands flugmálastjórna.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri.

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Bílakjarninn
Bílakjarninn