Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Viðurkenndi fíkniefnasölu
Mánudagur 5. febrúar 2018 kl. 11:10

Viðurkenndi fíkniefnasölu

Nokkur fíkniefnamál hafa komið upp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Karlmaður sem höfð voru afskipti af viðurkenndi bæði vörslur og sölu á fíkniefnum. Við húsleit sem gerð var að fengnu samþykki hans fundust kannabisefni og tugir þúsunda í reiðufé sem maðurinn viðurkenndi að væru ágóði af fíkniefnasölu.

Þá fannst nokkurt magn af kannabisefnum í bifreið sem lögregla stöðvaði.
Enn fremur reyndist hótelgestur sem höfð voru afskipti af vera með kannabisefni og hvítt duft í poka í fórum sínum, auk jónu sem hann sat ofan á í rúmi hans. Talsverð önnur ummerki voru um fíkniefnaneyslu í herberginu, tekin var vettvangsskýrsla af viðkomandi og honum síðan vísað út af hótelinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024