Víðtækt samstarfs Garðs og GS
– Fána Garðs flaggað og ein hola kennd við Garðskaga.
Sveitarfélagið Garður og Golfklúbbur Suðurnesja (GS) hafa gert með sér samstarfssamning. Bæjarráð Garðs samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 21. maí 2014 að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn.
Golfklúbbur Suðurnesja og Hólmsvöllur í Leiru eru í Sveitarfélaginu Garði. Í samningnum kemur m.a. fram að fáni Garðs verði alltaf sýnilegur þegar haldin eru stórmót í Leirunni, auk þess mun GS sjá til þess að í kynningum klúbbsins sé ætíð minnt á að GS og golfvöllurinn eru staðsett í Sveitarfélaginu Garði.
Meðal þess sem kemur fram í samningnum er að GS mun kynna golfíþróttina fyrir elstu nemendum Gerðaskóla og veita þeim endurgjaldslausan aðgang að æfingavelli klúbbsins, samskipti GS við unglinga í Garði verði í samræmi við uppeldisstefnu og stefnu um unglingastarf innan GS. Þá mun GS halda golfmót tileinkað Sólseturshátíðinni í Garði og ein hola vallarins mun bera heitið Garðskagaholan. GS mun veita Garði ráðgjöf vegna grasvalla sveitarfélagsins og framkvæma eina djúpgötun á knattspyrnuvelli Víðs á hverju ári. Í samningnum er áhersla á að GS beri ábyrgð á því að öll tilskilin leyfi séu til staðar varðandi mannvirki á starfssvæði GS, í samræmi við lög og reglur um skipulags- og byggingamál.
Sveitarfélagið Garður hefur veitt GS styrk sem nemur álögðum fasteignasköttum á eignum klúbbsins og verður svo áfram samkvæmt samningnum. Auk þess mun sveitarfélagið veita klúbbnum styrk sem nemur álögðum fasteignaskatti á klúbbhús klúbbsins í Leiru.
Samstarfssamningurinn gildir frá 1. janúar 2014 og framlengist í eitt ár í senn ef samningsaðilar segja honum ekki upp fyrir 31. desember ár hvert.