Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Viðskiptavinir sótt yfir 320 milljónir
Sunnudagur 30. janúar 2022 kl. 11:23

Viðskiptavinir sótt yfir 320 milljónir

App Samkaupa er orðið eitt af stærstu vildarkerfum á Íslandi. Meðalkarfa þeirra sem nota appið er rúmlega 50% stærri meðal þeirra sem nýttu sér appið á liðnu ári. Samkaup hvetja notendur til að sækja afsláttinn.

Yfir 40.000 vildarvinir sóttu app Samkaupa á aðeins sex mánuðum í fyrra og þar af 7.000 einvörðungu í desember. Appið er því meðal stærstu vildarkerfa á Íslandi en notendur fá afslátt af öllum vörum í þeim 65 verslunum Samkaupa sem staðsettar eru víðsvegar um landið. Nú nálgast velta kerfisins fjóra milljarða króna en sé horft til síðastliðins desember, sem setti tóninn fyrir nýtt ár, fór 22% allrar veltu Samkaupa í gegnum appið, en hlutfallsleg notkun appsins er í janúar á pari við desember, segir í frétt frá Samkaupum. 

„Við erum ótrúlega stolt af þeim viðtökum sem við höfum fengið á svo stuttum tíma. Þetta er gríðarlega góður árangur og greinilegt að viðskiptavinir eru móttækilegir fyrir þessari viðbót í þjónustu hjá okkur. Að notkun appsins í janúar sé á pari við desember gefur okkur sterkar vísbendingar um að hér séum við komin með ansi gott vildarkerfi í hendurnar. Við sjáum það líka á þeirri staðreynd að meðalkarfan hjá notendum á aldrinum 28 til 42 ára er til dæmis 54% stærri meðal þeirra sem nota appið svo það má segja að hvatinn hér er augljós. Við fögnum því sömuleiðis að þó svo að hlutfallslega séu flestir notendur á höfuðborgarsvæðinu, þá er landsbyggðin enginn eftirbátur þegar kemur að innleiðingu og notkun appsins og sjáum við gríðarlega góða svörun til dæmis á Akureyri og Skagaströnd svo einhverjir staðir séu nefndir. Þá er áhugavert að rýna í gögnin og sjá að landsbyggðin er öflugri í að nýta sér tilboðin sem boðið er upp á. Við sjáum jafnvel sums staðar dæmi þess að rúmlega 60% viðskipta fari fram í gegnum appið,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sem fyrr segir nemur upphæðin sem notendur versluðu fyrir yfir árið 2021 um fjórum milljörðum króna. „Við höfum sett mikið púður í að hvetja viðskiptavini til að nýta inneignina nú strax í janúar og þá þegar hafa um 320 milljónir verið nýttar í formi inneignar. Eðli kerfisins og inneignanna er þannig að þegar verslað er umbreytist afslátturinn í inneign og það sama á við þegar verslað er með inneignina, þannig stuðlum við að sífelldu flæði fyrir viðskiptavininn hjá okkur. Við munum halda áfram að þróa appið og reynum enn frekar að mæta kröfum nútíma viðskiptavinarins með ýmiskonar leikjapælingum, innkaupalistum og fríum vörum svo eitthvað sé nefnt,“ segir Gunnar.