Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Viðskiptavinir Hitaveitu Suðurnesja eru ánægðastir
Mánudagur 14. mars 2005 kl. 10:05

Viðskiptavinir Hitaveitu Suðurnesja eru ánægðastir

Hitaveita Suðurnesja hlaut viðurkenningu í flokki veitufyrirtækja hjá Íslensku Ánægjuvoginni þriðja árið í röð. Viðurkenningar voru afhentar og niðurstöður Íslensku Ánægjuvogarinnar voru kynntar 10.mars. HS hf tók fyrst þátt í könnuninni árið 2002 og hefur síðan skipað fyrsta sæti í sínum flokki.

Ölgerðin Egils Skallagrímsson varð efst í heildina og flokki framleiðslufyrirtækja, í flokki fjármálafyrirtækja urðu Sparisjóðirnir hlutskarpastir, Hitaveita Suðurnesja hf í flokki veitufyrirtækja og Olís í flokki smásölufyrirtækja. Eru þessi fyrirtæki því vinsælustu fyrirtæki landsins samkvæmt mælingum Íslensku Ánægjuvogarinnar.

Íslenska ánægjuvogin er félag, sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Gallup, standa sameiginlega að um þátttöku í Evrópsku ánægjuvoginni. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s.  ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina.

Mæling sem þessi er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um. Um er að ræða könnun á viðhorfum íslenskra viðskiptavina, þ.e. neytenda vöru eða þjónustu, til fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins. Þetta er í fimmta sinn sem ánægja viðskiptavina er mæld með þessum hætti.

Heildarúrtakið í könnuninni var um 11.000 manns úr þjóðskrá á aldrinum 15-75 ára.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024