Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Viðskiptaráðherra ræðir neytendamál í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 10. september 2008 kl. 21:56

Viðskiptaráðherra ræðir neytendamál í Reykjanesbæ




Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, ræddi neytendamál á fundi í Reykjanesbæ í kvöld en fundinum var að ljúka á Flughóteli.


Síðan ný ríkisstjórn tók við völdum fyrir rúmu ári hefur verið unnið að því að byggja upp öflugt ráðuneyti neytendamála innan viðskiptaráðuneytisins. Einn liður í þeirri uppbyggingu var útgáfa skýrslunnar Ný sókn í neytendamálu, staða neytenda á Íslandi sem unnin var af þremur stofnunum Háskóla Íslands. Til að fylgja því starfi eftir og leita samstarfs við fólk um allt land mun viðskiptaráðherra fara í fundarherferð um neytendamál. Fundurinn í Reykjanesbæ í kvöld var annar fundurinn af sjö í fundaferðinni sem hófst á Selfossi í gær.





Á vef viðskiptaráðuneytisins segir að neytendamál snerti alla íbúa landsins og því mikilvægt að sem flestum gefist kostur á að láta sín sjónarmið í ljós og þannig taka virkan þátt í stefnumótun á þessu sviði. Markmið fundanna er hvoru tveggja að kynna það stefnumótunarstarf sem þegar hefur farið fram og að kalla eftir sjónarmiðum fólks um allt land. Fjölmargir góðir gestir munu leggja Björgvin G. Sigurðssyni lið, til að mynda fulltrúar allra þingflokka á alþingi og ýmsir framámenn á sviði neytendamála.




Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á fundinum nú í kvöld.

Ítarlegt viðtal mun birtast við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í Vefsjónvarpi Víkurfrétta á morgun.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024