Viðrar vel til vorverka
Það viðrar vel til vorverka í dag en víða má sjá ungt athafnafólk við slík störf þessa dagana.
Spáin gerir ráð fyrir austlægri átt í dag við Faxaflóann, 3-8 m/s og bjartviðri, en þykknar upp síðdegis. Austan 5-10 og rigning í kvöld og nótt, en heldur hvassari og úrkomulítið á morgun. Hiti 9 til 18 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag og föstudag:
Suðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum sunnan og vestantil, en annars úrkomulítið. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast norðanlands.
Á laugardag:
Áframhaldandi suðaustlæg átt og vætusamt um landið sunnan- og vestanvert, en annars yfirleitt þurrt. Áfram fremur hlýtt.
Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir breytilega vindátt með vætu í flestum landshlutum. Heldur kólnandi.
Mynd: Þessi var við vorverkin í Garði í blíðviðrinu á föstudag. VF-mynd: elg.