Viðrar vel á sunnudagsgesti Ljósanætur
Það er heldur léttara yfir á þessum sunnudagsmorgni en var í gær en veðurspáin gerir ráð fyrir norðaustan 3-8 m/s við Faxaflóann léttskýjuðu og björtu að mestu, en stöku skúrum í kvöld.
Í nótt snýst vindur svo í suðaustanátt með rigningu í fyrramálið og nokkuð hvössum vindi þegar líður á daginn. Það viðrar því ágætlega í dag til að rölta um bæinn og skoða þær fjölmörgu myndlistarsýningar sem í boði eru.
Mynd: Það var heldur hráslagalegt á hátíðarsvæðinu í gærkvöldi en í dag ættu gestir Ljósanætur að geta skilið regnhlífarnar eftir heima.
VF-mynd: elg
.